Skúmaskot
Uppskriftasíður
út að borða, mæli með:
Njósnasíður
23.05.2006 09:01:29 / hrefna

Leið á lookinu!!!

Ný síða er á krumma.bloggar.is

Þar sem síðan er ný er ekki mikið af færslum en þó myndir.

Endilega kíkið!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 13:18:03 / hrefna

Snjókoma og bylur?!

Ég sem hélt að það væri komið sumar en nei byrjar þá bara að snjóa!! Ég er að horfa á Gilmore girls og er líklega á 20 þætti eða eitthvað.... Sorglegt! Ég hef reynt undanfarna daga að koma AutoCAD inn í tölvuna mína en ekkert hefur virkað! Ég hef reynt að eyða öllu út úr henni, innstalla, restarta... nei virkar ekki og hvað geri ég? Auðvitað reyni aftur en nei.. Ég og tölvur ekki gott samband.

Allavega þá eru 3 dagar þar til fyrirheitna landið Mexico fær heimsókn frá mér! Ég hef gert allar varúðarráðstafanir þ.e.a.s. millifært fullt af peningum, pakkað eins litlu og ég get og smá snyrtidót.

Allavega þarf að hugsa um Mexico endilega sendið fallegar hugsanir!

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 16:44:38 / hrefna

Eurovision

Jæja hér er ég ennþá í Végarði og núna er ég komin með heila seríu af Gilmore Girls auk Desperate Housewifes. Annars var svakalega gaman í Partýinu á þriðjudaginn! Þetta var fyrsta virka dags fylleríið mitt allavega sem ég man eftir...

En í kvöld er verið að skipuleggja Eurovision samkomu og verður pitsa og franskar og geggjað næs!! Ég er að fá nýtt og skemmtilegt verkefni hjá eftirlitinu sem er magntaka og ég er afar spennt yfir þessu. Nú get ég tekið þetta með í Végarð og gert þetta meðan enginn kemur og heimsækir mig :(

Jæja skrifa meira síðar. en ps. Birna Ósk virðist eiga reyðfirskan kærasta!

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 10:04:53 / hrefna

Fljótsdalur hin fagri?!

Nú er ég komin austur og er því ekki lengur Skólastúlka heldur ung sveitastúlka. Sveitastúlkan mun halda von bráðar til Mexico... bara svona til að minnast þess aðeins. Annars hlakkar hún mikið til að horfa ein (sorglegt) líklegast á Eurovision. Hefði nú verið gott að hafa hana Sögu aðalaðdáanda Eurovisoin með sér. En svona er lífið en ég hef ákveðið að poppa og drekka undanrennu og tala mikið við sjálfa mig!! Enginn ástæða til að þegja þó maður sé einn!

Annað sem er að frétta er að ég kem til með að vera minna íVégarði í sumar en í fyrra sem mér finnst persónulegra sorglegt þar sem það er skemmtilegt og frískandi. Auk þess sem ég labba alltaf þangað og svona þannig hreyfingin er meiri. En ég sætti mig við það sem til mín er sent.

Ég fylgdist með hreindýrum út um gluggan hér í gær en þau voru niðri við veg að jappla á einhverju góðgæti en ekki var laust við að ég væri fegin þegar þau töltu aðeins lengra frá aður en ég hélt heim.. enda hefur mér verið sagt að þau éti sveitastúlkur eins og mig milli mála!!

Hef þetta ekki lengra í bili en mun bókað skrifa eitthvað kvöldið sem Eurovision er til að geta tjáð mig við annan en mig sjálfa.

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 18:27:03 / hrefna

Smá blogghvíld!!

Ég hef verið ákaflega löt uppá síðkastið að blogga þ.e.a.s. en búin að vera hörkudugleg í skólanum. Ég er búin að fá út úr öllum prófunum og gekk bara fínt. Ég er allavega sátt við flest prófin. Eftir 5 daga fer ég austur og er þá búin þessa önnina í skólanum. Við erum í áfanga sem er bara ágætur þurfum ekki að vera alla daga til miðnættis svo það kallast gott.
Helgin er búin að vera nokkuð góð. Byrjaði þannig að á fstudaginn var farið í straum-burðarás í vísindaferð og þar var sko vel veitt mæli eindregið með því að fara þar!! En Já svo var partý í lögreglusalnum á eftir og þar var svakalegt stuð enda Hlynur okkar Ben að spila! Svo tók DJ við og þá var sko dansað.
Á laugardaginn var svo brunað í sumarbústað með stjórn Tehcnis og get ég sagt að þar hafi líka verið veitt vel og það sem gerist í sumarbústað verður þar áfram.....
Annars er ég búin að skrifa allt þetta blogg með lokuðum augum því þreytan er svo mikil þannig gaman verður ef fólk léti vita af stafsetningarvillum!

Mexícó raumar koma bráðum....

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 13:09:37 / hrefna

minnsirkus.is??

What the...?? Allavega ég hef nóg með þetta blog hér svo ekki fari að bætast í hópinn!! Ég er sem sagt í þriggja vikna áfanganum og gengur allt í lagi og er að vinna að því að klára fyrsta verkefnið sem er 20%. Nokkur vandræði áttu sér stað þegar Indriði (kennarinn) nefndi forritun en það tókst að lokum. Annars var djammað síðasta föstudag og komst ég þá að því að einn í VT-2 er bara að klára að gera upp Bjöllu!! Mér til mikillar gleði að einhver skuli virkilega sjá hvað þetta eru frábærir bílar! En ætlun hans er að nota þetta sem brúðarbílinn eftir 5 vikur þegar hann skellir sér í það heilaga.
Nokkuð var drukkið á föstudaginn og því verður tekið því afskaplega rólega um helgina enda verið að passa fyrir karl föður minn og eiginkonu hans.
Endilega kíkið í heimsókn kannski verður eitthvað gotterí á boðstólnum til að gera börnin ennþá geðveikari!! Gaman að því!

Allavega verð að halda áfram að láta mathcad reikna fyrir mig 8|

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 17:53:03 / hrefna

Sit við tölvuna í fljótsdal!

Nú er vinnudagurinn líklega bara búin og ég sit hér aðgerðarlaus og horfi á snjóinn falla fyrir utan. Þorvaldur er á leiðinni suður á bílnum hans pabba og ég vona að honum gangi bara vel alla leiðina.

Annars ætla ég að skella mér í "ræktina" hérna á eftir og fara í ljós í þessum líka fína ljósabekk... tek kannski nokkrar æfingar en öklinn er enn nokkuð aumur eftir partýið hjá Filip og Kobba!!

Ég fer til Reykjavíkur um 2 á föstudag og næ þar með að fara í vísindaferðina og hlakka mikið til!! Restina af helginni verður bara slakað á og undirbúin erfið 3 vikna törn! Hlakka mikið til að fara í sumarfrí en mér finnst þetta programm í skólanum vera virkilega þreytandi! Mikið álag í 3 mánuði samfleytt!!

Allavega ég lifi á því að vera fara til Mexico!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 17:39:12 / hrefna

Komin heim!

Ég fór eftir prófið síðasta föstudag (7.apríl) austur með Þorvaldi mínum í bíl. Við vorum snögg á áfangastað og gátum því náð úrslitum Idolsins og alles. Svo var bara verið með fjölskyldunni um helgina og farið á gönguskíði og fleira. Nú á mánudegi er ég svo komin í gamla staðinn minn í Fljótsdal og það er fínt. Hlakka mikið til að fara á hlaupabrettið hér svo í ljós og svo í hreina rúmið sem er umbúið með nýjum handklæðum og allt hreint og fínt!!

Alltaf jafn gott að borða hérna líka. Vinnan er eins og reyndar ekkert brjálað að gera þannig ég bara hætti snemma í kvöld til að dunda mér í iTunes.... Limewire er líka að gera sig hérna!!

Later...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 16:39:55 / hrefna

Nú er afmælisárið gert upp

Afmælisárið 2005-2006

Hvar var ég?
-Var í vist í Reykjavík yfirvetrartímann hjá Háskóla Reykjavíkur
-Fyrir austan yfir sumartímann og jól

Hvar vann ég?
-Sýndi andlit mitt stuttlega í Nesbakka
-Sýndi andlit mitt afar mikið í Végarði og hjá eftirlitinu í Fljótsdal

Nýjar lífsreynslur:
-Bý heima hjá karli föður mínum sem er algjörlega ný lífreynsla
-Þríf ekki vikulega....
-Læt klessa bílinn minn... eða lét ekki klessa bílinn minn en hann er semsagt ónýtur í dag!
-Ég gerði það að vana að sofa 6 tíma og borða ekkert nema handónýtar samlokur í margar vikur... Sorglegt
-Skemmtilegasta lífreynslan var að vera í fyrsta skipti (í manna minnum) í fríi um jólin!!!
-Seldi íbúðina sem ég og Þorvaldur áttum!

Hvað eignaðist ég?
-Eignaðist fyrsta bílinn minn!!
-Eignaðist 2 litlar frænkur (ein kom í gær á afmælisdaginn og þá erum við orðnar fjórar kellurnar sem ég þekki og eigum afmæli 3.apríl)

Greinilegt þykir að ekki hefur verið setið aðgerðarlaus þetta árið! Vonandi verður næsta ár ennþá viðburðarríkara!




» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 11:47:58 / hrefna

Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag!!

Enginn er búinn að syngja fyrir mig!! Mér finnst rosalega gaman þegar er sungið fyrir mig á afmæliu mínu sem og á öðrum dögum!
Allavega í tilefni að afmæli mínu hef ég ákveðið að segja hvað hefur gerst á árinu og þakka fólki sem hafa snert mig á þessu ári.

Til að byrja með vil ég þakka þessum aðilum
Þorvaldur -Fyrir stuðning og skemmtun á árinu ásamt því að hafa haldið á mér heim einu sinni (þá meina ég ekki að ég hafi verið full) heldur bara var ég þreytt í fótunum og hann var svo alminnilegur!! Einnig vil ég þakka honum þolinmæði og fyrir afmælisgjöfina en ég fékk geggjað hjól sem mig hefur langað í lengi!!

Saga -Vil ég helst þakka fyrir frábært ár! Reyndar höfum við sést álíka mikið þetta ár og þegar hún var á hólum en við eigum vonandi þá eftir að sjást álíka mikið þetta ár og árið sem kemur meðan hún verður úti í Noregi. Ég vil þakka henni samveruna og fyrir að vera fyndin.

Borghildur -Þakka ég sérstaklega fyrir félagsskapinn í baðhúsinu. Höfum við átt margar góðar (og erfiðar) stundir saman þar. Ég þakka Borghildi fyrir að hafa dregið mig þegar áfram og vona við eigum eftir að halda áfram í sumar þá fáu daga sem ég á í frí.

Öðrum í krumpuklúbbnum -Þakkir fyrir frábærar veitningar og kjaftasögur dauðans (þó auðvitað segjum við aðeins sannleikann). Þakkir fyrir hræðsluáróður :haha: og frábæra skemmtun! Hlakka alltaf til að hitta ykkur!

Heiðrún og Beta -Þakka ég fyrir þær óteljandi stundir í vetur í gegnum súr og sætt! Í gegnum prófatíð og djamm, framboð og stráka. Ég vil þakka ykkur fyrir að lifa spennandi lífi þar sem maður fær hasarinn beint í æð :klikk: ég þarfnast spennu í líf mitt og þið sjáið algjörlega um þann þátt. Þakka því fyrir skólastundir og sögustundir!

Fjölskyldunni -Verð ég að þakka svo enginn verði sár.... Þakka Lóu fyrir góðar stundir og mömmu fyrir góðan mat og hlýtt rúm. Þakka ömmu sérstaklega fyrir öll sms-in.... :lol:

Annars hefur árið verið mjög gott hjá mér en þetta er svo langur pistill að ég get ekki farið að telja meira upp.
Takk allir sem hafa verið með mér á árinu og vonandi sé ég meira af öllum á næsta ári þegar hægist aðeins á.

Kveðja AFMÆLISBARNIÐ Hrefna :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 12:38:49 / hrefna

Í nótt var sofið!!

í fyrsta skipti síðan á sunnudag fékk ég nokkuð góðan svefn. Hef verið að fara sofa um 2 og vakna kl. 8 en í gær var ég farin að sofa um 12 og vaknaði ekki fyrr en 8.30!! Geðveikt gott að sofa:!: Ég hef verið að taka grænt te töflur sem eiga hjálpa manni að fá jafnari orku og sofa betur þegar maður sefur og ég er ekki frá því að þetta virki aðeins!! Ekki mikið en betra en ekkert.
Annars er ég að fara byrja á reglunarfræðinni núna og vona ég að það gangi betur en burðarþolið sem hefur ekkert gengið alltof vel :cry: Við Heiðrún ætlum að nýta fim, fö, laug og sunnudag í reglun en prófið er á mánudag kl. 14:00 og er prófið í 3 tíma.
Eftir það hellum við okkur í burðarþol því prófið í því er á þriðjudagsmorguninn. Svo nýtum við þriðjudag (eftir próf), miðvikudag og fimmtudag í vélhlutafræði sem er á föstudaginn. En inn á milli verð ég að læra undir vöruþróun sem er á fimmtudagsmorgun.

Ég hlakka mikið til að fara heim á föstudaginn en ég á flug kl. 16:00 um 3 tíma eftir vélhlutafræðiprófið. Ég mun nýta þá helgi í að ná upp svefn og gera ekki neitt!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 09:56:05 / hrefna

Til hamingju Myrra, Hjalti og fjölskylda :)

Ég vil óska nýbökuðum foreldrum og móðursystrum, öfum og frændum til hamingju með litla drenginn sem á afmæli í dag. Hann fæddist reyndar mánuði fyrir tímann en það skiptir lítlu því hann náði samt 11 merkum!
Við vonum að sólargeislinn veiti fjölskyldunni mikla gleði!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 17:05:40 / hrefna

Náði kosningu!!

Kosningapartýið var mun meira stressandi en ég hélt. Beta var kynnt fyrst og þá fann ég hvað ég kveið fyrir því að fá mörg auð atkvæði! Svo kom Heiðrún... og magnaðist stressið þá upp. Svo kom ég og ég náði kosningu og þá leið mér betur og þegar tilkynningarnar voru búnar þá dönsuðum við Saga við Ninju og vinkonur hennar og svo héldum við heim á leið með flottasta bílstjóra bæjarins ;)

Í dag horfði ég Freydísi keppa í blaki og stóð hún sig með prýði. Þær unnu að sjálfsögðu bæði leikinn í dag og í gær. Í kvöld er hún á árshátíð og á ég að sækja hana þegar fylleríið er orðið of mikið. Annars er Hjörvar allur að koma til en þarf samt ennþá að fara út á sjúkrahús á 6 tíma fresti.

Ég fór nú bara í ræktina í morgun (bara smá mont ég meina það má stundum!) og svo bara að læra í allan dag og allt kvöld. Ég hlakka ekkert smá mikið til að setjast uppí flugvélina og fljúga heim en það verður að bíða í bili.

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 14:41:58 / hrefna

Föstudagur

Í dag var lokað fyrir kosningu en ég einmitt bauð mig fram deildarráðsfulltrúa Technis. Ég vona innilega að ég fái kosningu en annað væri alveg sorglegt og myndi ég ekki mæta aftur í skólann nema bara í próf þar sem ég er ein í framboði.

Annars er Hjörvar kominn heim en læt ekkert sjá sig hjá okkur 8|

Búin að sjá Silvíu Night lagið og það var geggjað skemmtilegt og ég hlakka ekkert smá til að horfa á Evróvisjon einnig útaf finnska laginu en myndbandið við það er geggjað líka. Held bara að Wig wam hafi opnað gátt sem sumir hefðu viljað hafa lokaða áfram....

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 12:02:25 / hrefna

CRAZY!

Allt er að verða brjálað (að verða mæ es...) í skólanum verkefnin hrannast upp og svo próf eftir 2 vikur! Annars gengur það ágætlega við kláruðum Reglun á réttum tíma (skilum í dag) þar sem gera átti hraðastýringu fyrir mótor. Svo er vélhlutfræðiverkefnið í öðrum málum þar á að hanna gírun og tannhjól- og reimdrif fyrir færirband (grjót).

Hjörvar er veikur (sýking í olnboga) og liggur eins og er á sjúkrahúsi í Vestmanneyjum með pensilín í æð. Hann er nú ekki í lífshættu en frekar veikur samt en fer vonandi að hressast núna.

Annar er mest lítið að frétta nema ég bauð mig fram í deildarráðsfulltrúa og er ein (eins og hinir) í framboði og vonast því til þess að ég fái kosningu ;)  Kosningarvaka verður á föstudaginn en staðsetning er enn óviss.

Sæl að sinni

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9